top of page
Search

Kynnumst hvölunum á Vestfjörðum

Writer: Tom Grove
Tom Grove
6 hours ago
2 min read

Velkomin í hvalafréttir Sjóferða! Ég heiti Tom og starfa sem yfirleiðsögumaður í hvalaskoðun og sjávarlíffræðingur. Ég hef rannsakað hvali við Ísland frá árinu 2017 og rek einnig sjálfseignarstofnunina Whale Wise, en vísindafólk á hennar vegum fer með í ferðir Sjóferða til að safna langtímagögnum um hvali.


Rannsóknirnar og reynslan af hvalaskoðun hafa gert mér kleift að kynnast hnúfubökum í Ísafjarðardjúpi afar vel. Ísafjarðardjúp er víðáttumikið fjarðakerfi á Vestfjörðum og þar fara allar hvalaskoðunarferðir okkar fram. Nú ætlum við, ásamt öðru starfsfólki Sjóferða, að deila með ykkur sögum og fróðleik um hvali og líf þeirra í Djúpinu.


Á hverju ári bætist við þekking okkar á útbreiðslu hvala, farleiðum þeirra og félagshegðun. Við erum jafnframt komin á þann stað að við þekkjum orðið flesta þá einstaklinga sem heimsækja Djúpið – allt frá Osprey, reyndri móður, til Octopus, félagslynds unghvals.


Hjá hnúfubökum má þekkja einstaklinga á litamynstrinu á neðra borði sporðsins. Við segjum ykkur meira frá því í síðari færslu.


Við erum einstaklega heppin hér í Ísafjarðardjúpi því margir sömu hvalanna snúa aftur ár eftir ár til að afla sér fæðu. Þetta kallast staðfesta við fæðusvæði (e. high site fidelity). Þegar hvalirnir snúa aftur dvelja þeir auk þess oft í Djúpinu í langan tíma. Það kallast löng dvalartíð (e. long residency). Þessi hegðun gerir okkur kleift að kynnast hvölunum vel – venjum þeirra, félagslegum samskiptum og jafnvel persónuleika.


Í þessum hvalafréttum ætlum við að gefa ykkur innsýn í líf hvalanna og upplifanir okkar á sjónum. Við kynnum ykkur meðal annars fyrir uppáhalds sporðunum okkar og nýtum vísindaleg gögn til að sýna hversu einstakt þetta svæði er fyrir heilt samfélag hvala.


Við hlökkum mikið til að hefja þessar hvalafréttir. Fylgist með!

 

Osprey the humpback whale. Credit: Whale Wise.
Osprey the humpback whale. Credit: Whale Wise.

 
 
 

Comments


bottom of page