þriðjudagurinn 23. desember 2008

Gleðileg jól og farsælt komandi ár!

Gleðileg jól,
Gleðileg jól,
« 1 af 2 »
  Sjóferðir Hafsteins og Kiddýjar, starfsmenn þess og stjórnendur, óska öllum viðskiptavinum sínum og fjölskildum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi árum. Við þökkum öllum þeim sem átt hafa viðskipti við okkur á undanförnum árum og bjóðum ykkur velkomin aftur um borð á nýju ári. 
  Allir aðrir landsmenn fá einnig jóla- og nýjárskveðju frá okkur og við kvetjum þá til þess að koma á Vestfirði næsta sumar og njóta náttúrfegurðarinnar sem Ísafjarðardjúp og Hornstrandir hafa uppá að bjóða.
miðvikudagurinn 3. september 2008

Nú taka haustverkin við

Bryggjuhúsið fær vörn fyrir veturinn
Bryggjuhúsið fær vörn fyrir veturinn
Nú þegar mesti annatíminn er yfirstaðinn í siglingunum er samt margt sem huga þarf að. Til að mynda vorum við að bera vörn á Bryggjuhúsið fyrir veturinn. Ekki endaði sumaraðið vel hvað varðaði komur skemmtiferðaskipanna, en tvö síðustu skipin hættu við að flytja farþega sína í land vegna veðurs. Búið er að sækja flotbryggjuna á Hesteyri og koma henni í skjól fyrir veturinn. Nú tekur við föst áætlun í Vigur og Æðey með póst og frakt, auk þess sem flytja þarf barn úr Vigur í og úr skóla í hverri viku. Líka þarf að huga að bátunum og framkvæma hefðbundar lagfæringar og eftirlit á þeim.
Sumarið hefur verið gott hvað veður varðar og mikill fjöldi ferðamanna verið fluttur á hina ýmsu staði, en kostnaður vegna olíuhækkana hefur verið langt umfram hækkun á fargjöldum, og setur það eflaust strik í reikninginn hvað útkomuna varðar þegar upp verður staðið.
Við viljum þakka öllum þeim sem ferðuðust með okkur í sumar og bjóðum þá velkomna aftur !
sunnudagurinn 24. ágúst 2008

Glímusýning í Vigur

Skipstjórum Sjóferða er markt til lista lagt, hér fóðrar Þorsteinn Másson
Skipstjórum Sjóferða er markt til lista lagt, hér fóðrar Þorsteinn Másson "heimaalningana"
Nú þegar líða tekur á sumarið og lundinn er floginn burt úr Vigur bjóða Sjóferðir upp á glímukynningu fyrir utan Viktoríuhús við mjög góðar undirtektir ferðamanna, en í dag var farþegum Funchal einmitt boðið upp á slíka kynningu. Stígur Berg Sóphusson kynnti glímuna fyrir ferðamönnunum á meðan þeir Sigurður Óli Rúnarsson og Stefán Birkir Stefánsson úr Herði glímdu, og sýndu hin ýmsu brögð í sókn og vörn. Þeim var klappað lof í lófa að sýningunni lokinni. 132 ferðamenn og 6 estkortar fóru með Sjóferðum í Vigur í dag. Nú fer senn að líða á síðustu komur skemmtiferðaskipa þetta sumarið, en aðeins tvö eru eftir, sem bæði koma nú í vikunni. Annað á morgun og hitt á föstudag. Þeirra farþegum verður einnig boðið upp á slíkar sýningar. Í dag gerðu ferðamennirnir sér að góðu að skoða uppstoppaðan lunda sem vakti óskipta athygli, og var myndaður í bak og fyrir.
Myndasyrpa frá deginum í Vigur er komin inn á myndaalbúmið.
mánudagurinn 4. ágúst 2008

Kjötsúpan sveik ekki á Hesteyri

Binna sá til þess að allir fengju nægju sína af kjötsúpu
Binna sá til þess að allir fengju nægju sína af kjötsúpu
Laugardaginn 2. ágúst var farin hin árlega kjötsúpuferð til Hesteyrar. Farið var á tveimur bátum að vanda og var ágætt veður í ferðinni, ládauður sjór og þurrt. Heldur kónaði þegar leið á kvöldið, en varðeldurinn sá til þess að allir náðu að halda á sér hita. Heimilisfólkið í Læknishúsinu var með marga potta fulla af kjötsúpu tilbúna þegar gestir mættu, og gekk vel að framreiða hana, en tjaldað hafði verið fyrir ofan húsið, en þar inn komust hátt í þrjátíu manns til að borða súpuna. Auk þess var setið í öllum stofum Læknishússins. Eftir matinn var sest á pallinn og sungið og gantast þar til varðeldur var tendraður í fjörunni. Kvöldinu lauk með því að Hafnarstjórinn á Hesteyri skaut upp nokkrum flugeldum, sem merki um það að nú ættu allir að mæta í bátana. Ánægðir og glaðir farþegar komu síðan til Ísafjarðar um þrjátíu mínútum eftir miðnætti. Nýja myndasyrpu úr ferðinni má nú finna inn á vefnum.
miðvikudagurinn 30. júlí 2008

Heimsókn um borð í skemmtiferðaskip

Bátar Sjóferða og Bryggjuhúsið sómir sér vel af þilfarinu
Bátar Sjóferða og Bryggjuhúsið sómir sér vel af þilfarinu
« 1 af 3 »
Það er ekki á hverjum degi sem heimamenn fá að fara um borð í þau skemmtiferðaskip sem sækja Ísafjörð heim. Um daginn var henni Láru Rán, leiðsögumanni hjá Sjóferðum, boðið um borð í eitt þeirra stærri eftir að hún lauk leiðsögn í Vigur, en stúlka sem vinnur á skipinu bauð henni að koma um borð og tók hana í leiðsögn um skipið til að borga fyrir Vigurferðina. Lára tók margar myndir um borð og við sýnum þrjár þeirra hér með fréttinni, sem sýnir útsýnið af efsta þilfari skipsins.
Eldri færslur
Vefumsjón